Fermt verður í Lágafellskirkju á Skírdag. Fyrri athöfnin hefst kl. 10:30 og síðari athöfnin kl. 13:30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Kristín Pálsdóttir þjóna í báðum athöfnum. Einsöng syngur Jón Magnús Jónsson og Sigrún Harðardóttir leikur á fiðlu. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ragnars Jónssonar organista. Í þessum athöfnum verða 32 börn fermd. Hægt er að sjá lista yfir fermingarbörn Lágafellssóknar þetta vorið hér.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

22. mars 2016 13:34

Deildu með vinum þínum