Kvennakirkjan leiðir guðsþjónustu í Mosfellskirkju sunnudaginn 25. október kl. 11:00. Tilefnið er tvíþætt, Mosfellskirkja heldur uppá 50 ára afmæli sittá þessu ári og öld er liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Að guðsþjónustu lokinni flytur Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, leikþátt um hina merku konu Ólafía Jóhannsdóttir sem fædd var á Mosfelli 1863, og kom m.a. við sögu sem baráttukona þess málefnis. Aðalheiður Þorsteinsdóttir tónlistarstjóri Kvennakirkjunnar leiðir tónlistina. Sr. Arndís Linn prestur Kvennkirkjunnar prédikar og konur Kvennakirkjunnar taka þátt. Að athöfn og leikþætti loknum býður Lágafellssókn í kaffi í Reykjadal. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagaskóli er að venju í Lágafellskirkju kl. 13:00. Umsjón hafa Hreiðar Örn og Ragnar Jónsson.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

20. október 2015 12:05

Deildu með vinum þínum