Boðið verður upp á andlegt ferðalag í anda Tólf sporanna í Mosfellsbæ í vetur. Sporin eru unnin eftir kerfi þar sem tekist er á við óuppgerðar tilfinningar. Flestum okkar hættir til að dragnast með slíkt í gegnum lífið með tilheyrandi þjáningum og ójafnvægi. Ekki er horft á fíkn sérstaklega. Kynningarfundur verður í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Mosfellsbæ, miðvikudagskvöldið 1. október kl. 18:30. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig. Þátttökugjald er ekkert. Hægt er að finna upplýsingar um 12 sporin andlegt ferðalag hér: www.viniribata.is
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
1. október 2014 09:14