Næstkomandi sunnudag, 13. apríl sem er Pálmasunnudagur verða tvær fermingar í Lágafellskirkju. Sú fyrri er kl. 10:30 og þá fermast 17 börn og sú síðari er kl. 13:30 og í þeirri athöfn fermast 16 börn. Báðir prestar safnaðarins , sr. Skírnir Garðarsson og sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjóna í athöfnunum. Kirkjukór Lágafellskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur Organista. Í báðum athöfnum syngur Jón Magnús Jónsson einsöng og Greta Salóme Stefánsdóttir leikur á fiðlu. Meðhjálpari er Rut G. Magnúsdóttir.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

9. apríl 2014 12:55

Deildu með vinum þínum